Birt 18. nóvember, 2024
Sigurvegari Tónkvíslarinnar að þessu sinni var Alexandra Ósk sem mun keppa fyrir hönd skólans í Söngkeppni Framhaldsskólanna.
Í öðru sæti í framhaldsskólakeppninni var Ríkey Perla og í þriðja sæti var hópurinn Litlir að neðan sem einnig unnu titilinn vinsælasta lagið.
Sigurvegarar í grunnskólakeppninni voru þær Vilborg Halla og Ellý Rún frá Þingeyjarskóla.
Við óskum þeim hjartanlega til hamingju með sigurinn.