Birt 25. nóvember, 2026
Þriðjudaginn 24. nóvember fengum við góða gesti í heimsókn þegar skólameistarar og næstráðendur SAMNOR komu til að kynna sér starfsemi skólans. Gestirnir fræddust um skipulag og starfshætti skólans og nutu síðan hádegisverðar í mötuneytinu.
Framhaldsskólarnir í SAMNOR eru: Framhaldsskólinn á Húsavík, Framhaldsskólinn á Laugum, Menntaskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Tröllaskaga og Verkmenntaskólinn á Akureyri.
Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna.

