Birt 24. nóvember, 2026
Mánudaginn 24. nóvember fengu nemendur í Framhaldsskólanum á Laugum góða heimsókn þegar fulltrúar frá samfélagslögreglunni komu og héldu fræðslu um öryggi, samskipti og forvarnir.
Lögreglumennirnir sem sinna þessari fræðslu starfa einnig við hefðbundin lögreglustörf og eru heimsóknir sem þessar mikilvægur hluti af samfélagslöggæslu.
Nemendur sýndu fræðslunni mikinn áhuga og voru duglegir að spyrja spurninga að fyrirlestri loknum. Heimsóknin tókst afar vel og var bæði fræðandi og gagnleg fyrir nemendur.
Við þökkum samfélagslögreglunni kærlega fyrir komuna og þann mikilvæga fróðleik sem hún miðlaði til nemenda okkar

