Sigurvegarar í Tónkvíslinni 2026

Birt 23. nóvember, 2026

Tónkvíslin 2026 fór fram við frábærar undirtektir laugardaginn 21. nóvember.

Sigurvegari keppninnar að þessu sinni var Emma Vigdís Fjólmundsdóttir, sem mun keppa fyrir hönd skólans í Söngkeppni framhaldsskólanna.

Í öðru sæti hafnaði Ellý Rún Ragúels Jóhannsdóttir og í þriðja sæti Maríon Edda Stefánsdóttir.

Vinsælasta atriðið átti dúóið Ellert Guðni Knútsson og Snorri Freyr Sigurðsson, en sigurvegari grunnskólakeppninnar var Bjartur Ingi Gunnarsson.

Dómarar keppninnar voru þau Dagný Pétursdóttir, Oddur Bjarni Þorkelsson og Daníel Andri Eggertsson.

Allir keppendur stóðu sig með mikilli prýði og sömuleiðis þeir nemendur sem komu að undirbúningi, framkvæmd og frágangi keppninnar. Skólahljómsveitin sló í gegn með glæsilegum flutningi og skemmtiatriðið á meðan dómarar réðu ráðum sínum vakti mikla lukku.

Við þökkum öllum sem lögðu leið sína á Laugar, sem og þeim sem fylgdust með í streymi í gegnum Livey.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá keppninni.

 

Emma Vigdís

Bjartur Ingi

Maríon og Ellý taka við verðlaunum fyrir annað og þriðja sætið

Alexandra tekur vinningslagið frá Tónkvíslinni 2025

Deila