Birt 5. nóvember, 2026
Útskriftarnemar þakka fyrirtækjum fyrir góðan stuðning
Útskriftarnemar skólans hafa um árabil séð um að panta og selja skólapeysur, sem eru orðnar fastur liður í skólastarfinu.
Í ár nutu útskriftarnemar dýrmæts stuðnings frá fjórum fyrirtækjum sem lögðu verkefninu lið. Við viljum færa Dalakofanum, Framsýn, Kraumu og Sparisjóði Þingeyinga okkar bestu þakkir fyrir veglegan stuðning og þátttöku.
Framlög fyrirtækjanna skipta miklu máli og hjálpa til við að gera verkefnið að veruleika. Fyrir það erum við afar þakklát.
Takk kærlega fyrir stuðninginn og þann velvilja sem þið sýnið nemendum skólans.

Fréttaskrif: Sólborg Matthíasdóttir
