Birt 3. nóvember, 2026
Stofnun Árna Magnússonar
Í gær, 2. nóvember, fengum við góða gesti þegar starfsmenn frá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum komu í heimsókn og héldu áhugaverða fyrirlestra fyrir nemendur og starfsfólk.
Nordjobb
Einnig heimsótti okkur fulltrúi frá Nordjobb sem kynnti möguleika á árstíðabundnum störfum, húsnæði og spennandi reynslu fyrir ungt fólk á Norðurlöndum.
Búningadagur í skólanum
Ásamt fyrirlestrum var búningadagur í skólanum og víða mátti sjá litríka og skemmtilega búninga starfsfólks og nemenda.
Við þökkum gestum okkar fyrir frábærar kynningar.



Fréttaskrif : Sólborg Matthíasdóttir
