Útskriftarferð til Tenerife

Birt 2. nóvember, 2026

 

Ógleymanleg útskriftarferð til Tenerife

Dagana 19. til 29. október fóru 14 nemendur ásamt tveimur kennurum og mökum þeirra í glæsilega útskriftarferð til Tenerife. Ferðin var viðburðarík og skemmtileg.

Á dagskránni var meðal annars þriggja tíma bátsferð, fjórhjólaferð, jetskyferð, heimsókn í dýragarð auk þess sem strandalífið og veitingastaðir þar sem hópurinn fór saman út að borða á hinum ýmsu stöðum.

Þegar litið er til baka eru allir sammála um að ferðin hafi verið einstaklega vel heppnuð. Hún styrkti vináttubönd, skapaði ótal góðar minningar og verður án efa lengi í minnum höfð sem ógleymanleg útskriftarferð til Tenerife. 

Fréttaskrif : Sólborg Matthíasdóttir 

Myndir : Nemendur og kennarar sem fóru í ferðina. Ascher, Svavar, Tinna og Lilu. 

Deila