Góð heimsókn í VMA

Birt 19. október, 2026

Föstudaginn 16. október fóru kennarar Framhaldsskólans á Laugum í VMA á Akureyri þar sem þeir hittu fyrir kennara skólans ásamt kennara úr MA til þess að hlusta á fyrirlestra. Á síðu VMA stóð textinn sem er hér fyrir neðan og ásamt því eru myndirnar frá síðu VMA.

Stefán Haukur Björnsson, samfélagslögreglumaður á Akureyri, reið á vaðið og ræddi um stöðu fíkniefnamála hjá ungu fólki. Kom fram hjá honum að sem fyrr séu fíkniefni af ýmsum toga í umferð og umhugsunarvert sé að það sé jafnvel auðveldara fyrir ungt fólk að nálgast þau en áfengi. Að erindi Stefáns loknu fékk hann fjölda spurninga frá kennurum um eitt og annað er lýtur að ávana- og fíkniefnum og hvernig skólarnir geti lagt sitt af mörkum í forvörnum.

Í öðru erindi dagsins ræddi fulltrúi Samtakanna 78 um málefni hinsegin fólks og orðræðuna í skólasamfélaginu. Loks var Kjartan Sigurðsson með erindi um vinnustaðamenningu.

Mynd – Verkmenntaskólinn á Akureyri

Mynd – Verkmenntaskólinn á Akureyri

Deila