Hallur áfangastjóri í Grenada

Birt 17. október, 2026

Ársleyfi, stærðfræði og óvænt ævintýri

Flestir þekkja Hall Birki Reynisson áfangastjóra en um þessar mundir hefur hann skipt út skrifstofunni fyrir skólastofuna. Hallur er í ársleyfi þar sem hann stundar framhaldsnám í stærðfræði. Ekki datt okkur í hug að hægt væri að bæta við þá þekkingu sem hann hefur þegar tileinkað sér en til þess þurfti hann að fara alla leið til Grenada í Karíbahafinu.

Sem betur fer hefur Hallur verið duglegur að deila bæði myndum og ferðasögum frá dvöl sinni og með góðfúslegu leyfi hans fáum við að leyfa öðrum að fylgjast með broti af ævintýrinu.

Strætó með karabísku ívafi

Dag einn ákvað Hallur að fara í miðbæinn. Þar var engin bið eftir næsta vagni samkvæmt stundaskrá. Í staðinn hægði gamall rauður Toyota Hiace á sér og bílstjórinn kallaði út um gluggann:

„Bus?“

Hallur veifaði, steig inn og fann sig fljótlega innan um ótal ruslapoka sem hann hafði enga hugmynd um hvað innihéldu. Strætókerfið í Grenada reyndist ólíkt því sem hann þekkti að heiman. Engar stoppistöðvar, engar tímaáætlanir, aðeins ákveðin leið og afar afslappað viðhorf til tímasetninga. Hins vegar virðist slakheitunum ekki fylgja hægur akstur því ökumennirnir keyra af krafti og nota flautuna óspart.

Baráttan við moskítóflugurnar

Ekki eru það aðeins samgöngurnar sem krefjast aðlögunar. Þegar Hallur gekk til kvöldverðar í ljósaskiptunum fékk hann fyrstu moskítóbitin sín. Eftir að fleiri bættust við um nóttina varð ljóst að þörf væri á aðgerðum. Lausnin? Himnasæng yfir rúmið sem vonandi heldur óboðnu gestunum í hæfilegri fjarlægð.

Þegar strætó ákveður að hætta

Það sem getur gert almenningssamgöngur enn meira spennandi er að stundum ákveður bílstjórinn einfaldlega að aka ekki lengra. Þá tekur við göngutúr. Einn daginn þurfti Hallur að ganga síðustu 1,5 kílómetrana í 36 stiga hita. Það telst líklega ágætis viðbót við daglega hreyfingu.

Leyndardómsfullir skúrar

Á ferðum sínum hefur Hallur líka tekið eftir fjölmörgum skúrum við þjóðvegina. Fæstir þeirra bera nein skilti. Sumir reynast vera veitingastaðir, aðrir verslanir og um suma er einfaldlega erfitt að átta sig á tilganginum. Það virðist vera hluti af sjarma staðarins að ekki sé allt útskýrt fyrir fram.

Fyrstu prófin í 30 ár

Námið gengur vel. Hallur mætti nýlega í sín fyrstu próf í þrjá áratugi og telur sjálfur að þau hafi gengið vel. Nemendafélagið kynnti einnig starfsemi sína og þar ákvað hann að skrá sig í þá klúbba sem byrjuðu á bókstafnum H. Niðurstaðan varð söguklúbbur og gönguklúbbur. Nú bíða spennandi dagar með sögum á miðvikudögum og gönguferðum um helgar.

Sunnudagur með tónlist og stáltrommum

Á sunnudagsmorgni heimsótti Hallur kirkju þar sem guðsþjónustan einkenndist af tónlist, samveru og gleði. Að messu lokinni ræddi hann við meðlimi hljómsveitarinnar sem kynntu fyrir honum hljóðfæri sem margir tengja við Karíbahafið, grenadískar stáltrommur. Einstakur hljómur þeirra setti punktinn yfir i-ið á enn einum viðburðaríkum degi í nýju og framandi umhverfi.

Við hlökkum til að fylgjast áfram með ævintýrum Halls í Grenada og sjá hvaða nýju sögur, myndir og stærðfræðilegar uppgötvanir bíða handan við hornið.

 

Fréttaskrif – Sólborg Matthíasdóttir

Deila