Föstudagsfréttir frá Framhaldsskólanum á Laugum

Birt 16. október, 2026

Þá er komið að föstudagsfréttum vikunnar.

Þessi vika hjá okkur var frekar róleg og góð, fyrir utan storminn sem fór yfir landið og við sluppum ekki við vindinn frekar en aðrir.

Laugadraumurinn er í fullum gangi með sínum skemmtilegu áskorunum. Á Facebook-síðu skólans sögðum við frá nemendum sem gistu í tjaldi á skólalóðinni en það var einmitt einn hluti af skemmtilegri áskorun á milli vista.

Hlekkur á facebook síðu skólans  –  Facebook 

Sveinn Jörundur Björnsson formaður Nemendafélags Laugaskóla fór í skemmtilegt viðtal hjá Vikublaðinu og mælum við með því að lesa viðtalið í heild sinni. Hlekkur á frétt er hér – Viðtal við formann nemendafélagsins í Vikublaðinu – FRAMHALDSSKÓLINN Á LAUGUM

Í dag fá nemendur síðan fræðslu í Þróttó frá Bjargráði sem er félag læknanema um endurlífgun.

 

Á mánudaginn 19. október leggja síðan útskriftarnemendur ásamt kennurum af stað í útskriftarferð til Tenerife þar sem þeir munu dvelja í tíu daga. Mikill spenningur er í hópnum og við munum segja betur frá ferðinni síðar.

Mánudagur og þriðjudagur fara síðan í uppbrot en þá geta nemendur valið af skemmtilegri og óhefðbundinni dagskrá eitthvað sem vekur áhuga þeirra. Ýmislegt er í boði, til dæmis kókóskúlugerð með Olgu áfangastjóra, prjón, púsl, leikir í íþróttasal, endurgerð atriðis úr bíómynd og margt fleira.

Góða og gleðilega helgi frá Laugum í Reykjadal.

 

 

Fréttaskrif – Sólborg Matthíasdóttir 

 

 

Deila