Jöfnunarstyrkur

Birt 4. september, 2026

Nemendur okkar geta sótt um jöfnunarstyrk og húsnæðisbætur. Sótt er um húsnæðisbætur fyrir 18 ára og yngri á bæjar- eða sveitaskrifstofum þar sem viðkomandi nemandi býr. Skila þarf inn staðfestingu á skólavist og afriti af húsaleigusamningi. Allir þeir sem hafa skrifað undir húsaleigusamninga hafa fengið sent afrit af húsaleigusamningi ásamt staðfestingu á skólavist frá Framhaldsskólanum á Laugum.

Þeir sem eru 18 ára og eldri sækja sjálfir um húsnæðisbætur á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Umsóknir og eyðublöð | Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Hvað er
jöfnunarstyrkur?

Jöfnunarstyrkur er námsstyrkur fyrir nemendur sem búa og stunda nám fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni.

Lögheimili má ekki vera í nágrenni við skólann sem nemendur stunda nám við. Hér má sjá töflu sem skilgreinir hvaða póstnúmer teljast vera í nágrenni við skóla.

  • Fjarnám er ekki styrkhæft.

  • Dreifnám er aðeins styrkhæft ef nemendur þurfa að mæta í skólann að minnsta kosti 50% af dagafjölda nemenda sem stunda dagsskóla.

Jöfnunarstyrkur skiptist í dvalarstyrk og akstursstyrk:

  1. Akstursstyrkur er ætlaður þeim nemendum sem keyra daglega í skólann frá lögheimili sínu. Lögheimili má þó ekki vera í nágrenni skóla, sjá töflu um skilgreiningar á nágrenni skóla hér fyrir ofan. Akstursstyrkur er einnig fyrir þá nemendur sem búa ekki í foreldrahúsum en geta ekki sýnt fram á leigugreiðslur.

  2. Dvalarstyrkur er fyrir þá nemendur sem flytja a.m.k. 30 km frá lögheimili sínu og fjölskyldu til þess að geta stundað nám sitt, það er, þá nemendur sem eru á heimavist og/eða greiða leigu.

Hægt er að fá jöfnunarstyrk að hámarki í 4 ár eða 8 annir.

Hverjir geta fengið
jöfnunarstyrk?

Nemendur á framhaldsskólastigi sem stunda nám fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni geta átt rétt á jöfnunarstyrk.

  • Nemandi telst stunda reglubundið nám sé hann skráður í og gengið til prófs í a.m.k. 20 FEIN-einingum á önn.

  • Námsmenn í starfsnámi/iðnnámi og aðfaranámi geta átt rétt á bæði námslánum og jöfnunarstyrk. Námsmaður getur þó ekki fengið bæði jöfnunarstyrk og námslán á sömu önn.

  • Nemendur í launuðu starfsnámi eiga ekki rétt á jöfnunarstyrk.

  • Háskólanemar eiga ekki rétt á jöfnunarstyrk.

 

Tengsl við lögheimili

Nemendur verða að hafa skýr tengsl við lögheimili sitt. Með því er átt að t.d. fjölskylda námsmanns búi á staðnum, að námsmaður sé með þinglýstan leigusamning eða eigi fasteign þar samkvæmt fasteignavottorði.

  • Með fjölskyldu er átt við foreldra/forráðamenn, maka samkvæmt skráðri sambúð/hjúskap og/eða börn nemanda.

  • Lögheimili umsækjanda miðast við lögheimili sem skráð er í þjóðskrá þann dag sem auglýstur umsóknarfrestur rennur út.

 

Umsóknarfrestir

Umsóknarfrestur er til 15. október á haustönn og 15. febrúar á vorönn.

Ef umsókn um námsstyrk berst eftir auglýstan umsóknarfrest skerðist styrkurinn um 15% frá 1. nóvember á haustönn og frá 1. mars á vorönn.

Ekki er hægt að sækja um styrk eftir að fjórir mánuðir eru liðnir frá umsóknarfresti á viðkomandi önn.

Það opnar fyrir umsóknir um jöfnunarstyrk þann 1. september, bæði fyrir haust- og vorönn.

Deila