Birt 3. september, 2026
Það hefur verið nóg um að vera fyrstu skóladagana.
Vikan fór vel af stað á mánudag og þriðjudag þar sem skólafundur, námskynningar og kynning á aðstöðunni voru í brennidepli. Við létum þó ekki þar við sitja heldur nýttum líka tímann í skemmtilega leiki utandyra til þess að hrista hópinn saman.
Á miðvikudaginn var svo komið að hinni árlegu og vinsælu skólaferð. Nemendur smurðu sér nesti í bítið og héldu af stað í mikla upplifunarferð. Við skoðuðum Goðafoss í öllu sínu veldi, fórum í fjörugan ratleik á Grenivík og enduðum daginn á Akureyri. Eftir dýrindis kvöldmat á Vitanum hélt þreyttur en einstaklega glaður hópur heim á leið.
Veturinn leggst gríðarlega vel í okkur í Framhaldsskólanum á Laugum.

