Teiknaði mynd af skólanum fyrir 100 ára afmælið

Birt 21. maí, 2026


100 ára afmæli Laugaskóla

Í tilefni af hundrað ára afmæli  Laugaskóla þann 25. október 2025 sóttu yfir þúsund gestir okkur heim á Laugar í Reykjadal og nutu fjölbreyttrar og metnaðarfullrar dagskrár.

Undirbúningur og afmælisnefnd

Í aðdraganda hátíðarinnar var skipuð sérstök afmælisnefnd sem sá um alla helstu þætti viðburðarins. Hún stóð meðal annars fyrir söfnun til að láta gera styttuna Laugaparið sem nú prýðir skólasvæðið, og samdi við Ottó Gunnarsson um gerð heimildamyndarinnar  Voru allir hér ?  sem frumsýnd var á afmælinu.

Listaverk fyrir hátíðina

Til þess að kynna hátíðina þurfti að útbúa boðskort og annað efni tengt hátíðinni og  ákveðið var að leita til fyrrverandi nemanda skólans, Maríu Thor og biðja hana að teikna mynd af skólanum sem hægt væri að nota á kynningarefni fyrir hátíðina.

Nemendur Laugaskóla í bolum með myndinni sem María teiknaði


Myndin var notuð á boðskort sem send voru út í tilefni af hundrað ára afmæli Laugaskóla.


Forvitni um ferðalag Maríu

Okkur lék forvitni á að vita hvað varð til þess að María valdi Laugaskóla á sínum tíma og hvað stendur upp úr þegar hún hugsar til baka til dvalarinnar á Laugum.

María og myndin sem hún teiknaði af Laugaskóla


Óvænt ákvörðun sem breytti öllu

María útskrifaðist frá Laugum árið 2017, en leið hennar þangað var óvænt og óundurbúið ferðalag.

„Ég var búin að fá stundatöflu í MH,“ segir hún. „Svo ákvað ég tveimur dögum áður en skólinn byrjaði að fylgja bestu vinkonu minni í Laugaskóla. Ég hringdi upp í Laugar og fékk inngöngu bókstaflega korter í að önnin byrjaði. Starfsfólkið þar er alveg einstakt.“


Selur myndir í gegnum síðuna sína Maria Thor art
Nýlega höfðu Ragna kennari og Kristján kokkur samband við mig og spurðu hvort ég væri til í að teikna mynd af Laugaskóla fyrir 100 ára afmælið. Ég hef verið að selja teikningar mínar undir nafninu María Thor art og þau hafa keypt af mér áður, sem ég kann ótrúlega vel að meta. Skrautið og umhverfið í kringum skólann er svo mikið minn stíll, þannig að mér fannst sjálfsagt að bæta því við.

Samfélagið heldur utan um þig

Að búa á heimavistinni á Laugum er einfaldlega yndislegt. Þar lærir maður sjálfstæði, að opna sig og að búa annars staðar en samt með samfélagið til að halda utan um þig. Ég hitti vinkonur sem ég kynntist á Laugum nánast daglega enn í dag, og ég myndaði vináttur og tengsl við kennara sem ég er ævinlega þakklát fyrir.

Ég myndi hiklaust mæla með Laugum fyrir alla. Þetta er svo miklu meira en bara skóli.
Þetta eru falleg lokaorð frá þessari hæfileikaríku listakonu og við þökkum henni kærlega fyrir sitt framlag til hátíðarinnar. 

Fréttaskrif: Sólborg Matthíasdóttir
Deila