Birt 19. maí, 2026
Með hálf fullan Ikea poka og ískrandi ferðatösku úr geymslunni hjá ömmu þinni heldur þú vongóð inn á heimavist Framhaldsskólans á Laugum. Full eftirvæntingar en samt óvenju sveitt finnur þú herbergið þitt og bankar eilítið hikandi á hurðina. Kom inn kallar einhver hátt innan úr herberginu. Þú opnar hurðina að glænýjum veruleika. Þetta er klassískt og kunnuglegt atriði sem að margir þekkja úr kvikmyndum.

En hvað er það nákvæmlega sem tekur við ?
Það er vel tekið á móti nemendum Framhaldsskólans á Laugum í upphafi skólaárs af heimavistarstjóra skólans sem veitir þeim og forráðamönnum helstu upplýsingar.
Smelltu á hlekkinn til að skoða upplýsingar um heimavist Framhaldsskólans á Laugum.
Heimavistin – FRAMHALDSSKÓLINN Á LAUGUM
Fréttaskrif: Sólborg Matthíasdóttir
