Vegleg bókagjöf

Birt 14. apríl, 2026

Fimmtudaginn 9. Apríl kom rithöfundurinn og fjölmiðlamaðurinn Björn Jónas Þorláksson frá Vogum úr Mývatnssveit fyrrverandi nemandi skólans og færði bókasafni skólans að gjöf eitt eintak af öllum þeim bókum sem  hann hefur skrifað, átta talsins. Sögur af veru Björns í Laugaskóla koma fyrir í a.m.k. einni bókinni. Það var Birna Björnsdóttir bókasafnskennari sem setti sig í sambandi við Björn og þannig kviknaði þessi hugmynd. Sigurbjörn Árni Arngrímsson skólameistari veitti bókunum viðtöku og þakkaði Birni fyrir höfðinglega gjöf. Bókunum hefur verið stillt upp á bókasafninu og eru þær til útláns.

 

 

 

Deila