Söngkeppni framhaldsskólanna

Birt 9. apríl, 2026

Stærsti og rótgrónasti menningarviðburður framhaldsskóla landsins

Söngkeppni framhaldsskólanna á rætur að rekja til ársins 1982 og hefur verið haldin í núverandi mynd frá 1990. Keppnin er einn stærsti og rótgrónasti menningarviðburður framhaldsskóla landsins og hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir ungt fólk til að stíga sín fyrstu skref í söng, tónlist og sviðsframkomu.

Í gegnum árin hefur keppnin skapað sér sterkan sess í íslensku menningarlífi og orðið hluti af sameiginlegri reynslu kynslóða framhaldsskólanema. Nemendafélög um allt land halda undankeppnir innan sinna skóla og sigurvegarar vinna sér þar með þátttökurétt í aðalkeppninni.

Þannig hefur keppnin bæði sameinað skólasamfélögin og skapað brú milli ólíkra landshluta með tónlist, sköpun og samvinnu að leiðarljósi. Á síðustu árum hefur keppnin vaxið hratt á ný, bæði í umfangi og sýnileika.

Alexandra Ósk keppir fyrir hönd Framhaldsskólans á Laugum 

Við hvetjum alla til þess að horfa á keppnina og styðja við Alexöndru.

 

 

Deila