Farsældardagur Norðurlands eystra

Birt 9. september, 2026 Námsráðgjafi Framhaldsskólans á Laugum sótti ráðstefnuna Farsældardagur Norðurlands eystra sem fór fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri föstudaginn 4. september. Fjölbreyttur hópur fagfólks, fulltrúa stofnana, sveitarfélaga og foreldra kom þar saman til að ræða farsæld barna, samþættingu þjónustu og hvernig styrkja megi samstarf þeirra fjölmörgu aðila sem koma að málefnum barna og fjölskyldna á starfssvæði SSNE. Á síðu SSNE kemur eftirfarandi fram.  Meðal annarra sem fluttu …Lestu áfram

Mánudagsminning

Birt 7. september, 2026 Hvernig beygist orðið „afmælisgleði“? Svarið finnst á kaffistofunni í dag! 🥳 Mánudagsminningarnar eru á sínum stað og í dag fögnum við henni Rögnu okkar íslenskukennara sem varð sextug í sumar. Það er dásamlegt að starfa með konu sem auðgar ekki bara málvitund okkar heldur líka alla stemninguna á vinnustaðnum. Húrra fyrir þér og þínum sextíu árum, kæra Ragna!

Jöfnunarstyrkur

Birt 4. september, 2026 Nemendur okkar geta sótt um jöfnunarstyrk og húsnæðisbætur. Sótt er um húsnæðisbætur fyrir 18 ára og yngri á bæjar- eða sveitaskrifstofum þar sem viðkomandi nemandi býr. Skila þarf inn staðfestingu á skólavist og afriti af húsaleigusamningi. Allir þeir sem hafa skrifað undir húsaleigusamninga hafa fengið sent afrit af húsaleigusamningi ásamt staðfestingu á skólavist frá Framhaldsskólanum á Laugum. Þeir sem eru 18 ára og eldri sækja sjálfir …Lestu áfram