Farsældardagur Norðurlands eystra

Birt 9. september, 2026

Námsráðgjafi Framhaldsskólans á Laugum sótti ráðstefnuna Farsældardagur Norðurlands eystra sem fór fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri föstudaginn 4. september. Fjölbreyttur hópur fagfólks, fulltrúa stofnana, sveitarfélaga og foreldra kom þar saman til að ræða farsæld barna, samþættingu þjónustu og hvernig styrkja megi samstarf þeirra fjölmörgu aðila sem koma að málefnum barna og fjölskyldna á starfssvæði SSNE.

Á síðu SSNE kemur eftirfarandi fram. 

Meðal annarra sem fluttu erindi voru Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri farsældar- og barnaverndarsviðs Barna- og fjölskyldustofu, Baldur Ingason frá Ungmennahúsi Akureyrarbæjar, fulltrúar Sjúkrahússins á Akureyri og Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, fulltrúar Brúarinnar fjölskylduseturs og lokaerindi dagsins flutti Anna Dögg Sigurjónsdóttir, málstjóri frá Akureyrarbæ, sem endaði dagskránna með kraftmikilli ræðu.

Deginum lauk með pallborðsumræðum undir yfirskriftinni Tækifærin í samþættingu þjónustu – Funkerar farsæld barna? þar sem fulltrúar foreldra, sveitarfélaga, Barna- og fjölskyldustofu og íþróttahreyfingarinnar ræddu tækifæri og áskoranir við innleiðingu farsældar.

Þorleifur Kr. Níelsson, verkefnastjóri Farsældarráðs Norðurlands eystra, segir daginn hafa gefið mikilvæga innsýn inn í áframhaldandi starf ráðsins.

„Það er mikil tilhlökkun hjá okkur að kynna það starf sem hefur verið unnið og Farsældardagurinn gaf okkur jafnframt verðmætt veganesti inn í áframhald þessarar vinnu. Markmiðið er að brjóta niður múra milli kerfa og horfa heildrænt á málefni barna. Barnið á ekki að þurfa að passa inn í skipulag kerfanna heldur þurfa kerfin að vinna saman út frá þörfum barnsins,“ segir Þorleifur.

Heimir Örn Árnason, formaður stjórnar SSNE, sleit ráðstefnunni síðdegis.

Námsráðgjafi skólans er Eygló Sófusdóttir.

Námsráðgjafi – FRAMHALDSSKÓLINN Á LAUGUM


Deila