Heimildarmynd um Laugaskóla í Bíó pardís

Birt 6. desember, 2025 Heimildarmyndin um Laugaskóla, Voru allir hér? Laugar í 100 ár verður sýnd í Bíó paradísí Reykjavík næstkomandi mánudag klukkan 19:00.   Síðast seldist upp og því er upplagt að stökkva til áður en það verður of seint.   Hægt er að kaupa miða hér → https://tix.is/event/20583/voru-allir-her     Hér er svo smá sýnishorn úr myndinni https://www.youtube.com/watch?v=-S9tcHyM9Bo    

Ný hlaupabretti í íþróttahúsið á Laugum

Birt 5. desember, 2025 Magnús Már Þorvaldsson forstöðumaður Sundlaugarinnar á Laugum skrifar skemmtilegan pistil á facebook síðu laugarinnar sem við birtum hér ásamt myndum sem hann tók. Gömul bretti og ný – bestu hlaupabretti á Norðurlandi á Laugum? Að gefnu tilefni hefur helgin verið annasöm í kringum líkamsræktina í íþróttamiðstöðinni á Laugum en Framahaldsskólinn, eigandi líkamsræktarinnar, endurnýjaði hlaupabretti sín með afgerandi hætti. Spurt er í fyrirsögn hvort mögulega státi ræktin …Lestu áfram

Tónkvíslin hlaut styrk úr Menningar – og viðurkenningasjóði KEA fyrir árið 2025

Birt 4. desember, 2025 Það er ánægjulegt að segja frá því að Tónkvíslin hlaut styrk úr Menningar – og viðurkenningasjóði KEA fyrir árið 2025. Styrkurinn var afhentur við formlega athöfn í Hofi 1.desember sl. veittu framkvæmdastýrur styrknum viðtöku. Á myndinni má sjá þær Dagrúnu Ingu og Ríkeyju Perlu taka við styrknum.