Skólasetning og haustferð!

Gallery

Í gær, 28. ágúst var skólinn formlega settur í íþróttasal framhaldsskólans á Laugum. Gaman var að sjá nýja og gamla nemendur koma aftur eftir sumarfrí og koma sér fyrir á heimavistunum.

Nemendur mættu í morgun í Þróttó og Bjössi skólameistari fór yfir helstu atriðin með nemendum. Dagskráin næstu daga er óhefðbundin, en fyrstu dagarnir eru skipulagðir í hina ýmsu leiki og hópefli, því það er jú nauðsynlegt að hrista hópinn saman fyrir veturinn.

Á morgun, föstudag, verður farið í haustferðina og við leggjum af stað frá Laugum eftir kaffihressingu.  Við byrjum á því að fara til Húsavíkur og þar geta nemendur verslað sér bækur sem þau þurfa fyrir skólaveturinn. Við leggjum svo leið okkar til Vopnafjarðar og tökum þátt í allskonar leikjum.  Á Vopnafirði verður grillað og að lokum gistum við í íþróttahúsinu á Vopnafirði. Þessar ferðir hafa alltaf lukkast vel og eru góð byrjun á vetrinum. Nemendur fá lista um það sem þau eiga að taka með sér fyrir ferðina.

  • Til nemenda – í haustferðinni verður Instagram leikur sem við hvetjum ykkur eindregið til að taka þátt í, þar verða ýmsar áskoranir og meðal annars þurfið þið að setja inn myndir með myllumerkinu #laugaskóli.

Við hlökkum til að byrja þennan vetur og erum hæstángæð með þessa byrjun!

Skólinn er loks að hefjast!

Undirbúningur skólaársins í fullum gangi og allt að verða klárt fyrir veturinn. Nú eiga allir nemendur og forráðamenn að vera búnir að fá sent upplýsingabréf þar sem farið er yfir helstu atriðin fyrir komandi skólaár. Það sem þú þarft að vita: Heimavistir verða opnaðar 28. ágúst klukkan 13:00 og nemendur sækja lykla og skrifa undir húsaleigusamning á skrifstofu skólans. Best Lesa áfram →