
Fyrstu skóladagarnir á Laugum
Það er mikið um að vera í litlum heimavistarskóla út á landi þegar krakkar flykkjast í Reykjadalinn til að hefja skólagöngu sína. Strax á fyrsta degi eftir skólasetningu var farið með alla nemendur í árlega ferð um nágrennið sem er ætluð til að kynna nágrenni skólans og þjappa hópnum saman. Eftir skólafund á fimmtudagsmorgni var haldið af stað í tveimur rútum upp í Mývatnssveit þar sem Gestastofa Gígs var heimsótt. …Lestu áfram
Jöfnunarstyrkur til náms
Við bendum nemendum og aðstandendum þeirra að nú er búið að opna fyrir umsóknir um jöfnunarstyrk.
Hvað er í matinn ?
Á heimasíðu skólans má sjá matseðil vikunnar. Kristján kokkur og hans frábæra starfslið sér um að úbúa matseðilinn sem kemur svo inn á heimasíðu skólans og á upplýsingaskjá skólans á mánudögum. Þar má einnig sjá hvaða húsbændur eru á vakt fyrir hverja viku og símanúmer hjá þeim sem eru á vakt. Hér fyrir neðan má sjá það sem er á boðstólnum um helgina. Föstudagur Hádegi: Mjólkurgrautur, slátur, brauð og álegg …Lestu áfram

