Birt 19. júní, 2025
Vinir Laugaskóla
Vinir Laugaskóla er fésbókarsíða stofnuð til þess að sameina fyrrum nemendur Laugaskóla. Svo segir á síðunni sem lesa má hér fyrir neðan.
Vinir Laugaskóla er fésbókarhópur eldri sem yngri Laugamanna.
Markmið:
Að auka tengsl Laugaskóla við fyrrum nemendur og aðra þá sem bera hag skólans fyrir brjósti.
Að styrkja og efla Framhaldsskólann á Laugum/Laugaskóla með ráðum og dáð.
Una María Óskarsdóttir skrifar eftirfarandi
Kæru Laugamenn! 91%! Hjartans þakkir fyrir hreint frábær viðbrögð við ósk okkar um að þið – öll sem eitt – takið þátt í gerð bronsstyttunnar Laugaparsins.
Bekkurinn með Laugaparinu mun standa við tjörnina og við getum tyllt okkur niður. Jafnvel tekið mynd og hugsað um gamla góða tíma á Laugum! Hver bíður ekki eftir því! Við erum að ná takmarki okkar og erum núna komin með um 91%, en betur má ef duga skal.
Vil einnig láta ykkur vita að nöfn allra sem taka þátt í verkefninu verða skráð í sérstaka bók sem gefin verður út!
Þetta er svo gaman! Margt smátt gerir eitt stórt. Minni hér á númerið okkar:
Kennitala: 580918-0180
1110-05-250834
Með Laugakveðju

Laugaparið sem er í vinnslu.