Vinir Laugaskóla hafa náð frábærum árangri

Birt 5. júní, 2025

Vinir Laugaskóla 

Vinir Laugaskóla er fésbókarsíða stofnuð til þess að sameina fyrrum nemendur Laugaskóla. Svo segir á síðunni sem lesa má hér fyrir neðan.

Vinir Laugaskóla er fésbókarhópur eldri sem yngri Laugamanna.
Markmið:
Að auka tengsl Laugaskóla við fyrrum nemendur og aðra þá sem bera hag skólans fyrir brjósti.
Að styrkja og efla Framhaldsskólann á Laugum/Laugaskóla með ráðum og dáð.
 
 

Una María Óskarsdóttir skrifar eftirfarandi 

Kæru Laugamenn! Nú hefur Laugaparið tekið á sig enn betri mynd og okkur hefur tekist að safna sem nemur um 84% af markmiði!  Nú eru því 16% sem uppá vantar svo við biðjum ykkur öll að leggjast á eitt og ná þessum 16% inn  Eins og komið hefur fram þá eru framlögin frjáls og við þökkum kærlega fyrir. Það er mikils virði að standa saman að þessari veglegu gjöf. Kennitala: 580918-0180 1110-05-250834
 

Listaverkið eins og það lítur út í dag.

Við þökkum Vinum Laugaskóla fyrir góða vinnu í þágu skólans.

Deila