Birt 9. apríl, 2025
Páskafrí nemenda
Nú eru nemendur Framhaldsskólans á Laugum að fara í langþráð páskafrí. Skólinn verður lokaður frá og með 9.apríl til 22.apríl þegar skólastarfið hefst að nýju. Það er alltaf hægt að senda okkur póst á si.ragual@ragual sem verður svarað við fyrsta tækifæri. Strætóferðir til Akureyrar frá Laugum í Reykjadal eru auglýstar sérstaklega á skjánum í skólanum. Í dag 9. apríl fer strætó frá Dalakofanum á Laugum til Akureyrar kl. 12.42
Sumardagurinn fyrsti
Á sumardaginn fyrsta verður opið hús í skólanum og hvetjum við alla til þess að taka daginn frá og kíkja í heimsókn. Dagurinn verður með glæsilegra móti í þetta sinn og margt um að vera fyrir alla. Þetta er einnig gott tækifæri fyrir þá nemendur sem huga að námi við skólann að koma í heimsókn og skoða skólaumhverfið og fræðast um það námsúrval sem er í boði við skólann okkar. Við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin.
Við óskum nemendum okkar og þeirra fjölskyldum gleðilegra páska.
