Birt 19. nóvember, 2026
Veikindi ber að tilkynna til skólaritara fyrir kl. 10:00 þann dag sem nemandi er veikur á netfangið si.ragual@ragual
Sé nemandi ólögráða ber foreldri/forráðamanni að tilkynna veikindin fyrir kl.10.00.
Nemandi sem hefur tilkynnt veikindi á að halda til í herbergi sínu. Sjáist til hans annars staðar fær hann fjarvistir skráðar fyrir allan daginn.
Veikum nemanda er þó heimilt að mæta til að matast í matsal skólans á matmálstímum.
Athugið að veikindin teljast sem fjarvistir og lækka því raunmætingu nemandans.
