Birt 2. október, 2026
Þær Eygló námsráðgjafi og Olga áfangastjóri heimsóttu Vopnafjörð dagana 30. september og 1. október. Þar tók Bjarney kennari á móti þeim á Kaupvangi, en hún er verkefnisstjóri útibúsins á Vopnafirði.
Á miðvikudeginum hittu þær foreldra nemenda í 9. og 10. bekk í Kaupvangi þar sem skólinn var kynntur og boðið upp á léttar veitingar.
Á fimmtudeginum heimsóttu þær grunnskólann og hittu nemendur. Ferðin var vel heppnuð í alla staði og afar ánægjulegt að hitta bæði nemendur og foreldra á Vopnafirði.

