Birt 11. september, 2026
Vikan hefur gengið vonum framar hér í Framhaldsskólanum á Laugum.
Á mánudeginum hélt starfsfólk skólans upp á afmæli Rögnu íslenskukennara, sem varð 60 ára í sumar, og færði henni gjafir frá skólanum og starfsmönnum.

Ragna kennari á yngri árum og Ragna kennari með nemendum sínum í íslenskuáfanga fyrir nokkrum árum síðan.
Í hádeginu á þriðjudaginn var röðin frekar löng því þá var boðið upp á hamborgara og franskar að hætti Kristjáns kokks. Enginn vill missa af þeirri máltíð.
Undirbúningur fyrir Tónkvíslina er hafinn og nemendur eru í óðaönn að skrá sig í hópa eftir áhugasviði. Þeir hópar sem eru í boði eru hárgreiðslu- og förðunarhópur, tæknihópur, fjáröflunarhópur, umönnunarhópur, skreytingarhópur og smíðahópur.
Á fimmtudaginn var Gulur dagur í skólanum og var þátttaka bæði nemenda og starfsfólks mjög góð.

Á fimmtudag var jafnframt boðað til kosninga fyrir nýnemafulltrúa skólans og munum við birta niðurstöður kosninga þegar úrslit liggja fyrir.
Í dag er síðan boðið upp á kjötsúpu í hádeginu og Systa kennari dansar um gangana í frímínútum eins og henni einni er lagið.
Góða helgi frá Laugum í Reykjadal
