Skólabyrjun Framhaldsskólans á Laugum

Birt 24. ágúst, 2026

Skólinn verður settur sunnudaginn 30. ágúst kl. 16:00 í íþróttahúsinu á Laugum. Heimavistir opna kl.13:00 þann sama dag og nemendur sækja lykla á skrifstofu skólans í Gamla skóla. Að skólasetningu lokinni verður viðstöddum boðið upp á mat í mötuneyti skólans.

Áfangastjóri, náms- og starfsráðgjafi og brautarstjóri almennrar brautar bjóða upp á viðtalstíma sunnudaginn 30.ágúst frá kl. 13:00-15:00.

Hægt er að bóka tíma með því að senda tölvupóst á:

Áfangastjóra: si.ragual@aglo

Náms- og starfsráðgjafa: si.ragual@olgye

Brautarstjóri almennrar brautar: si.ragual@eannahoj 

Við hlökkum til þess að taka á móti nýjum sem og eldri nemendum skólans.

Deila