Æfing og gróðursetning á Laugum

Birt 16. maí, 2026

Kvöldið var fagurt á Laugum í Reykjadal þegar hópur útskriftarefna Framhaldsskólans á Laugum fylgdi Kristni Inga Péturssyni kerfisstjóra skólans ásamt Sigurbirni skólameistara og Halli áfangastjóra að gróðursælum reit á skólalóðinni. Sú skemmtilega hefð að hvert og eitt útskriftarefni gróðursetji sitt eigið tré kvöldið fyrir brautskráningu vekur alltaf jafn mikla lukku. Eftir standa rætur sem lifandi minnisvarði um hópinn sem okkur kveður á morgun. Þeirra bíður nýtt upphaf og við vonum að þau muni vaxa og dafna líkt og tréð sem þau gróðursettu hér í Reykjadalnum í kvöld

Það er mikill undirbúningur í gangi í Framhaldsskólanum á Laugum fyrir brautskráningu nýstúdenta sem fram fer í dag þann 16. maí kl. 14:00. Við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin að gleðjast með okkur. Hér fyrir neðan má sjá myndir af æfingu í íþróttahúsinu á Laugum.

 

Okkur barst falleg kveðja frá fyrrum nemanda Laugaskóla og fengum við góðfúslegt leyfi til birtingar.

Laugar heimili að heiman 

Þau þrjú skólaár sem ég var á Laugum 1954, 1955 og 1956 eru ein þau dýrmætustu sem ég hef átt og hjálpuðu mér mikið á þeim tíma. Þegar ég keyri framhjá skólanum á leið minni norður eða á leið minni heim á Seyðisfjörð að norðan, þá rifjast alltaf upp nokkur atvik úr skemmtilegu samfélagi okkar nemenda á þeim tíma. Kærar þakkir til ykkar sem í dag standið vörð um það frábæra og skemmtilega skólastarf og heimili sem Laugar voru og eru enn í dag. 

Þorvaldur Jóhannsson 70 ára útskriftarnemi Laugaskóla 

 

Fréttaskrif: Sólborg Matthíasdóttir 

 

 

 

Deila