Birt 11. maí, 2026
Máni Sæmundsson útskrifast úr Framhaldsskólanum á Laugum þann 16. maí næstkomandi. Hann er hálf íslenskur og ólst upp í Sakaeo á Thailandi. Fyrir þremur árum flutti hann frá hitabeltisloftslagi í Thailandi yfir í íslenskan vetur með snjó, roki og myrkri. Sú staðreynd að tala ekki stakt orð í íslensku stoppaði ekki Mána frá því að stunda nám við skólann.

Máni fyrir utan Framhaldsskólann á Laugum
Virkur í félagslífi skólans
Jákvæður og brosmildur alla daga hefur hann með mikilli þrautseigju lært að skilja íslensku ásamt því að tala eilítið sem verður að teljast mikið afrek miðað við hvað tungumáln eru ólík á allan hátt. Máni hefur verið einstaklega virkur í félagslífi skólans og hefur meðal annars tvisvar sinnum tekið þátt í fitness keppni skólans sem hann sigraði í fyrra.

Máni ásamt hluta af útskriftarhóp Framhaldsskólans á Laugum
Listrænn og hjálpsamur
Máni sem er þekktur fyrir hjálpsemi taldi það ekki mikið mál að að hanna listaverk frá grunni sem komið var fyrir í íþróttahúsinu á Laugum. Listaverkið sem er tré vakti mikla athygli gesta á hátíðinni. Máni myndaði nemendur skólans ásamt því að prenta út myndirnar og hengja á listaverkið sem sjá má hér fyrir neðan.

Það verður mikill söknuður að hitta ekki Mána á göngunum skælbrosandi með kaffibolla eða te að bjóða góðan daginn en hann verður hér eftir hluti af fjölskyldunni á Laugum í Reykjadal.
Einu sinni Laugamaður, ávallt Laugamaður!

Fréttaskrif: Sólborg Matthíasdóttir
