Birt 6. maí, 2026
Þann 16. maí næstkomandi verður útskrift að venju frá Framhaldsskólanum á Laugum. Dagrún Inga Pétursdóttir er ein af þeim sem útskrifast úr skólanum af Kjörsviðsbraut skólans.
Leikdeildin nýtur góðs af nálægð við Framhaldsskólann á Laugum
Nemendur eiga þess kost að taka virkan þátt í uppsetningu á leiksýningu ár hvert og hljóta einingar fyrir vinnuframlag sitt í hinum ýmsu verkefnum sem þeim bjóðast. Verkefnin eru fjölbreytt og má þar nefna meðal annars bæklingagerð, förðun, aðstoð við ljósamenn, leikur og dans ásamt því að spila í hljómsveit svo eitthvað sé nefnt.

Ómetanlegur lærdómur fyrir nemendur
Ávinningur þess að taka þátt í leiklistarstarfi í sveitinni er ómetanlegur lærdómur sem getur stuðlað að félagslegum þroska nemanda, byggt upp sjálfstraust, tjáningu og hæfni til þess að vinna saman í hóp þar sem ólíkur aldur af fólki kemur saman til þess að vinna að sama markmiði. Dagrún Inga hefur verið einstaklega öflug í leiklistarstarfi skólans í samvinnu við Leikdeild eflingar og hefur tekið þátt í fjölmörgum stórgóðum sýningum sem leikfélagið hefur sett upp í gegnum árin.

Dagrún á æfingu hjá Leikdeild Eflingar
Fjögur systkini sem öll hafa stundað nám í Framhaldsskólanum á Laugum
Þann 16. maí næstkomandi útskrifast Dagrún Inga frá Framhaldsskólanum á Laugum og er þá seinust í röðinni af fjórum systkinum sem öll hafa útskrifast frá skólanum. Það verður að teljast merkilegt og stórskemmtilegt í senn fyrir foreldra þessara systkina að eiga fjórar útskriftarmyndir frá sama skólanum.

Útskriftarmyndir frá systkinum Dagrúnar frá Framhaldsskólanum á Laugum
Eftir stendur öll hennar gríðarlega góða vinna
Það verður mikill söknuður eftir þessari hæfileikaríku stúlku. En eftir stendur öll hennar gríðarlega góða vinna á samfélagsmiðlum skólans og má þar nefna myndband sem hún og samnemendur hennar bjuggu til í Miðlunartækni sem skoða má hér fyrir neðan.
Fréttaskrif: Sólborg Matthíasdóttir
