Birt 30. apríl, 2026
Verkefnið hans var að hanna og smíða skáp
Emil Vilbergsson var nemandi í Sögu Laugaskóla veturinn 2024 – 2025. Umfangsmesta verkefni hans var að hanna og smíða skáp utan um Flateyjarbók, sem er rithandarprentsútgáfa með íslenskum formála, sem Danakonungur færði Laugaskóla árið 1936.

Verkið tók töluverðan tíma
Það var því verðugt og spennandi verkefni, á 100 ára afmæli skólans, að koma þessum dýrgrip í veglegan skáp. Verkið tók töluverðan tíma þar sem hönnun þurfti að vera góð vegna þyngdar bókarinnar og hvernig best færi um hana.

Samvinna í hönnun og smíði
Um hönnun sá Emil og um smíðina sá Kristján Snæbjörnsson, Laugabrekku. Það fer vel um bókina í vandaða skápnum og við erum þakklát fyrir áhuga og vinnusemi Emils og Kristjáns að þessu verki.

Emil útskrifast úr skólanum 16. maí næstkomandi
Emil Vilbergsson er uppalinn á Flúðum í Hrunamannahreppi. Honum datt í hug að prófa að stunda nám eina önn við skólann eftir að vinafólk móður hans mælti með skólanum. Önnin varð síðan að þremur árum og er Emil að útskrifast úr skólanum 16. maí næstkomandi. Kassinn verður hér áfram um ókomna tíð og lykillinn að skápnum verður merktur sem Emils kassi.

Fréttaskrif: Sólborg Matthíasdóttir
