Ferðalag á föstudögum

Birt 13. mars, 2026

Einu sinni Laugamaður, ávallt Laugamaður!

Í tilefni af hundrað ára afmæli Laugaskóla þá báðum við fyrrum nemendur skólans sem og núverandi nemendur um setningar sem lýsa ferðalaginu í gegnum árin í skólanum. Með setningunum setjum við einnig inn gamlar og nýjar myndir frá skólanum og skólalífinu í Laugaskóla.


 

Það sem mér finnst best við að vera á Laugum er hversu náið og hlýlegt samfélagið er

 


 

 


Þegar hundrað unglingar búa saman á heimavist myndast sterk tengsl og dýrmæt vinátta 

 

 


Hér kynntist ég vinum auk makans míns sem hefur verið með mér í 15 ár og vonandi lengur. En hér kynntist ég líka sjálfri mér, hér naut maður leiklistar í faðmi sveitunga og var öllum stundum í íþróttahúsinu. Ég prófaði allt og aldrei var manni neitað að skjóta nýjum hugmyndum upp. Lengi lifi Laugadraumur

 

 


Það er annar skóli sem byrjar hálf fjögur sem er ekki síður mikilvægur

 

 

Það er engin ein minning sem kemur upp í hugann en ég upplifði mikla hlýju þegar ég var hér. Ég eignaðist marga góða vini sem eru enn vinir mínir í dag. Ég átti alltaf góða tengingu við fólkið í eldhúsinu og ég hjálpaði þeim oft við matinn. Fékk stundum ís gefins eða eitthvað annað gott. Takk Laugar

 

 

 

Fréttaskrif: Sólborg Matthíasdóttir

Deila