Birt 6. mars, 2026
Einu sinni Laugamaður, ávallt Laugamaður!
Í tilefni af hundrað ára afmæli Laugaskóla þá báðum við fyrrum nemendur skólans sem og núverandi nemendur um setningar sem lýsa ferðalaginu í gegnum árin í skólanum. Með setningunum setjum við einnig inn gamlar og nýjar myndir frá skólanum og skólalífinu í Laugaskóla.
Hver saknar þess ekki að hlaupa í kvöldkaffi, hitta aðra unglinga, fá sér mjólk og mjólkurkex. Þessi stemning er svo hlý og heimilisleg.

Laugaskóli er ekki bara skóli – hann er annað heimili.

Á þessum stað er hugsað vel um hvern og einn, jafnvel löngu eftir að dvölinni lýkur.

Vinátta skiptir máli og sú sem myndaðist hér á Laugum er einstök.

Árin á Laugum voru einhver bestu ár ævi minnar og mótuðu ungan mann sem horfði með tár í hvarmi á bíl foreldra sinna keyra í burtu eftir að hafa keyrt mig á Laugar í fyrsta sinn. Ég þekkti ekki nokkurn mann, en var svo sannarlega tekið með opnum örmum og átti þarna frábær ár og eignaðist marga vini til lífstíðar.

Fréttaskrif: Sólborg Matthíasdóttir
