Birt 27. febrúar, 2026
Einu sinni Laugamaður, ávallt Laugamaður!
Í tilefni af hundrað ára afmæli Laugaskóla þá báðum við fyrrum nemendur skólans sem og núverandi nemendur um setningar sem lýsa ferðalaginu í gegnum árin í skólanum. Með setningunum setjum við einnig inn gamlar og nýjar myndir frá skólanum og skólalífinu í Laugaskóla.
Til hamingju Laugaskóli – Skólinn fóstraði mömmu 1952-54 og héðan átti hún dýrmæta vináttu og góðar minningar sem entust ævina á enda.

Ástin átti lögheimili í Laugaskóla frá fyrsta degi.

Hér er einhver hlýja í loftinu sem skilur eftir sig væntumþykju sem erfitt er að lýsa með orðum

Ferðin mín á Laugar var nokkuð einföld og tilbreytingalaus, átta tímar í strætó en það sem er betri saga er dagurinn sem ég trillaði á efir nýnema torfunni til að kynnast öllum byggingunum. Þegar komið var í matsalinn bauð Kristján kokkur okkur velkomin og sagði okkur að það að við værum komin hingað væri okkar allra besta ákvörðun. Þetta situr enn í mér þar sem ég valdi skólann fyrir tilviljun og hann reyndist svo vera með mínum bestu ákvörðunum í lífinu.

