Birt 12. febrúar, 2026

Mynd frá leiksýningu Eflingar rataði á forsíðu Bandalags íslenskra leikfélaga
Ungmennafélagið Efling, Reykjadal. Stofnað 24. apríl 1904.
Leikdeild Ungmennafélgs Eflingar í Reykjadal er metnaðarfull leikdeild sem á sér langa og öfluga sögu að baki.
Leikdeildin er mikilvægur partur af menningarlífi í sveitinni með sínum árlegu leiksýningum sem haldnar eru í félagsheimilinu á Breiðumýri.

Breiðumýri árið 1965

Breiðumýri árið 2024

Leikdeildin nýtur góðs af nálægð við Framhaldsskólann á Laugum
Nemendur eiga þess kost að taka virkan þátt í uppsetningu á leiksýningu ár hvert og hljóta einingar fyrir vinnuframlag sitt í hinum ýmsu verkefnum sem þeim bjóðast. Verkefnin eru fjölbreytt og má þar nefna meðal annars bæklingagerð, förðun, aðstoð við ljósamenn, leikur og dans ásamt því að spila í hljómsveit svo eitthvað sé nefnt.
Ómetanlegur lærdómur fyrir nemendur
Ávinningur þess að taka þátt í leiklistarstarfi í sveitinni er ómetanlegur lærdómur sem getur stuðlað að félagslegum þroska nemanda, byggt upp sjálfstraust, tjáningu og hæfni til þess að vinna saman í hóp þar sem ólíkur aldur af fólki kemur saman til þess að vinna að sama markmiði.

Nemendur hafa tekið að sér að búa til bæklinga og auglýsingar fyrir leikfélagið. Hér má sjá auglýsingu fyrir Þrek og tár sem frumsýnt verður 13. febrúar næstkomandi.

Æfing í Breiðumýri nú í ár á leiksýningunni Þrek og tár í leikstjórn Maríu Pálsdóttur
Starfsfólk skólans tekur einnig þátt
Það eru ekki einungis nemendur skólans sem taka virkan þátt í uppsetningu á hinum árlegu leiksýningum því starfsfólk skólans tekur einnig þátt í starfinu. Í ár eru fjórir starfsmenn Framhaldsskólans á Laugum þáttakendur í leikritinu Þrek og tár.

Sigurbjörn Árni skólameistari Framhaldsskólans á Laugum

Freydís Anna kennari við Framhaldsskólann á Laugum


Myndir frá leiksýningum fyrri ára hjá Eflingu
Kvenfélag Reykdæla tekur þátt í sýningum Eflingar
Kvenfélag Reykdæla setur upp kaffihús á sýningum Eflingar og geta leikhúsgestir því notið þess að panta sér veitingar á meðan sýningum stendur. Við hvetjum því alla að taka sér tíma til þess að fá sér vöfflu með rjóma og njóta þess að horfa á Þrek og tár í félagsheimilinu á Breiðumýri í Þingeyjarsveit.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá sýningum leikdeildar Eflingar í Þingeyjarsveit.




Fréttaskrif: Sólborg Matthíasdóttir
