Félagslegir töfrar samfélagsins

Birt 4. febrúar, 2026

Við fengum frábæran fyrirlestur frá Viðari Halldórssyni sem fjallar um félagsleg samskipti.

Á heimasíðu hans stendur eftirfarandi. 

Félagslegir töfrar felast í þeim ósýnilegu en stórkostlegu og lífsnauðsynlegu verðmætum sem myndast í félagslegum samskiptum og samveru fólks í samfélagi. Félagslegir töfrar eru, með öðrum orðum, aflið sem mótar hugmyndir, hugsanir, hegðun og sjálfsmynd fólks, dregur fólk hvert að öðru, gerir hóp að liði, og samfélagi að samfélagi.

Fyrirlesturinn í Þróttó

 

Eftir frábæran fyrirlestur fengum við einnig bókina hans Sjáum samfélagið að gjöf og kunnum við honum okkar bestu þakkir fyrir.

Nemendafélag Framhaldsskólans á Laugum tekur við bókinni eftir frábæran fyrirlestur.

Heimasíða Dr. Viðars Halldórssonar er hér fyrir neðan fyrir áhugasama.

Félagslegir töfrar – Um félagslega töfra

Deila