Hvað er jöfnunarstyrkur ?

Birt 8. janúar, 2026

 

Jöfnunarstyrkur er námsstyrkur fyrir nemendur sem búa og stunda nám fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni.

Lögheimili má ekki vera í nágrenni við skólann sem nemendur stunda nám við.

 Hér má sjá töflu sem skilgreinir hvaða póstnúmer teljast vera í nágrenni við skóla.

  • Fjarnám er ekki styrkhæft.
  • Dreifnám er aðeins styrkhæft ef nemendur þurfa að mæta í skólann að minnsta kosti 50% af dagafjölda nemenda sem stunda dagsskóla.

Jöfnunarstyrkur skiptist í dvalarstyrk og akstursstyrk:

  1. Akstursstyrkur er ætlaður þeim nemendum sem keyra daglega í skólann frá lögheimili sínu. Lögheimili má þó ekki vera í nágrenni skóla, sjá töflu um skilgreiningar á nágrenni skóla hér fyrir ofan. Akstursstyrkur er einnig fyrir þá nemendur sem búa ekki í foreldrahúsum en geta ekki sýnt fram á leigugreiðslur.
  2. Dvalarstyrkur er fyrir þá nemendur sem flytja a.m.k. 30km frá lögheimili sínu og fjölskyldu til þess að geta stundað nám sitt, það er, þeir nemendur sem eru á heimavist og/eða greiða leigu.

Hægt er að fá jöfnunarstyrk að hámarki í 4 ár eða 8 annir.

Nemendur á framhaldsskólastigi sem stunda nám fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni geta átt rétt á jöfnunarstyrk.

Umsóknarfrestir

Umsóknarfrestur er til 15. október á haustönn og 15. febrúar á vorönn.

Ef umsókn um námsstyrk berst eftir auglýstan umsóknarfrest skerðist styrkurinn um 15% frá 1. nóvember á haustönn og frá 1. mars á vorönn.

Ekki er hægt að sækja um styrk eftir að fjórir mánuðir eru liðnir frá umsóknarfresti á viðkomandi önn.

Það opnar fyrir umsóknir um jöfnunarstyrk þann 1. september, bæði fyrir haust- og vorönn. 

Upphæðir og útborganir

Styrkirnir eru greiddir út eftir hverja önn í janúar og júní þegar skólarnir hafa staðfest námsárangur annarinnar.

  • Styrkurinn er greiddur inn á bankareikning námsmanns sem verður að vera skráður á hans nafni.
  • Ekki er hægt að greiða inn á bankareikning foreldra eða annarra.

 

Upphæðir jöfnunarstyrks námsárið 2025-2026 á hvorri önn fyrir sig:

  • Akstursstyrkur: kr. 125.000
  • Dvalarstyrkur: kr. 213.000

 

Deila