Hannaði kassa utan um Flateyjarbók

Birt 30. apríl, 2026 Verkefnið hans var að hanna og smíða skáp Emil Vilbergsson var nemandi í Sögu Laugaskóla veturinn 2024 – 2025. Umfangsmesta verkefni hans var að hanna og smíða skáp utan um Flateyjarbók, sem er rithandarprentsútgáfa með íslenskum formála, sem Danakonungur færði Laugaskóla árið 1936. Verkið tók töluverðan tíma  Það var því verðugt og spennandi verkefni, á 100 ára afmæli skólans, að koma þessum dýrgrip í veglegan skáp. …Lestu áfram

Skuggakosningar

Birt 29. apríl, 2026 Miðvikudaginn 29.apríl fara fram skuggakosningar í framhaldsskólum landsins og að sjálfsögðu tekur Laugaskóli þátt. Skuggakosningar eru kosningar þar sem framhaldsskólanemar kjósa sína fulltrúa í sveitarstjórn og munu endurspegla vilja nemenda um allt land. Niðurstöður verða gerðar opinberar á kjördag, 16.maí.       

Mannréttindaskóli ársins þriðja árið í röð

Birt 28. apríl, 2026 Á hverju ári blæs Íslands­deild Amnesty Internati­onal til herferð­ar­innar Þitt nafn bjargar lífi, sem er alþjóðleg mann­rétt­inda­her­ferð við að safna undir­skriftum til stuðn­ings einstak­linga eða hópa sem þolað hafa mann­rétt­inda­brot. Fastur liður í herferð­inni er fram­halds­skóla­keppni í undir­skrifta­söfnun, þar sem ungt fólk er hvatt til að beita sér í þágu mann­rétt­inda. Mannréttindaskóli ársins þriðja árið í röð Við erum stolt og ánægð með að vera Mannréttindaskóli ársins …Lestu áfram