Ferðalag á föstudögum

Birt 27. febrúar, 2026 Einu sinni Laugamaður, ávallt Laugamaður! Í tilefni af hundrað ára afmæli Laugaskóla þá báðum við fyrrum nemendur skólans sem og núverandi nemendur um setningar sem lýsa ferðalaginu í gegnum árin í skólanum. Með setningunum setjum við einnig inn gamlar og nýjar myndir frá skólanum og skólalífinu í Laugaskóla.    Til hamingju Laugaskóli – Skólinn fóstraði mömmu 1952-54 og héðan átti hún dýrmæta vináttu og góðar minningar …Lestu áfram

Húsnæðisbætur og jöfnunarstyrkur

Birt 26. febrúar, 2026 Nemendur okkar geta sótt um jöfnunarstyrk og húsnæðisbætur. Sótt er um  húsnæðisbætur fyrir 18 ára og yngri á bæjar eða sveitaskrifstofum þar sem viðkomandi nemandi býr. Skila þarf inn staðfestingu á skólavist og afriti af húsaleigusamningi. Hægt er að senda póst á si.ragual@allos og óska eftir sendingu á pappírum.  Þeir sem eru 18 ára og eldri sækja sjálfir um húsnæðisbætur á vef Húsnæðis og mannvirkjastofnunar. Umsóknir …Lestu áfram

Vetrarhátíð við Mývatn

Birt 24. febrúar, 2026 Vetrarhátíð við Mývatn verður haldin dagana 27. febrúar – 8. mars 2026 og fer hátíðin fram víðsvegar um Þingeyjarsveit. Þessi hátíð samanstendur af margvíslegum vetraríþróttum, keppnum, viðburðum og vetrardagskrá fyrir alla fjölskylduna.  Við viljum vekja sérstaka athygli á að heimildamyndinni Voru allir hér ? Laugar í 100 ár sem verður sýnd í Þróttó á sunnudaginn 1. mars kl. 20 og þriðjudaginn 3.mars kl. 17. Ókeypis inn. …Lestu áfram