Nemendur höfðu sigur í bráðabana

Image

Birt 28. mars, 2019

Miðvikudagsmótaröðin hófst á nýjan leik í vikunni. Um er að ræða örkeppni milli starfsmanna og nemenda í ýmsum íþróttum og leikjum. Í fyrstu keppninni öttu liðin kappi í hreyfiveggnum þar sem spilaður var tennis. Skemmst er frá því að segja að nemendur höfðu sigur í bráðabana í æsispennandi einvígi og hafa þar með tekið forystuna í keppninni þessa önnina. Næstu 4 skólavikur munu liðin etja kappi og það lið sem vinnur fleiri einvígi hampar bikarnum, en nemendur stóðu einmitt uppi sem sigurvegarar á haustönninni. 

Mikið líf og fjör

Image

Birt 25. mars, 2019

Mikið líf og fjör hefur verið á Laugum seinustu daga og vikur en 9. og 10.bekkingar úr grunnskólum Akureyrar hafa verið í heimsókn hjá okkar.

Grunnskólanemendur koma og fá kynning á námi, námsframboði, skólaumhverfi og félagslífi. Hús skólans eru skoðuð, kíkt á heimavistarherbergi, hreyfiveggurinn okkar prófaður og örlítið sprellað í íþróttahúsinu. Hverri heimsókn lýkur svo með ljúffengum hádegismat í mötuneytinu. Við þökkum grunnskólanemendum Akureyrar og starfsfólki kærlega fyrir komuna.

Reynslunni ríkari eftir veturinn

Image

Birt 22. mars, 2019

Blaklið skólans gerði fína ferð í Kópavoginn um síðustu helgi þar sem þeir spiluðu í síðasta helgarmótinu í 3. deild Íslandsmótsins.  Það fór svo að liðið endaði veturinn í 5. sæti deildarinnar og eru reynslunni ríkari eftir veturinn og eru klárlega búnir að setja viðmið til að bæta sig enn meira fyrir næsta vetur. Þeir sem spiluðu í þessu síðasta móti voru: Haukur, Sigurður, Óliver, Árni Fjalar, Guðmundur Gígjar og Stefán Bogi ásamt þeim Bjössa skólameistara og Gumma kennara sem fylltu uppí hópinn fyrir strákana.