Smíðavinnan hafin
Vinnan við að setja upp sviðið fyrir Tónkvíslina hófst í hádeginu í dag. Verkinu miðar vel áfram eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Vinnan við að setja upp sviðið fyrir Tónkvíslina hófst í hádeginu í dag. Verkinu miðar vel áfram eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Í dag, miðvikudag er undirbúningur Tónkvíslar, sem fram fer í íþróttahúsinu á Laugum, komin í fullan gang þar sem einungis þrír dagar eru til stefnu. Margir nemendur lögðu því námsbækur til hliðar í morgun og viðtekur feikimikið verknám, að setja upp tónlistarveislu sem fram fer nk. laugardagskvöld kl. 19.30. Nemendur munu vinna hörðum höndum næstu daga við tæknimál, smíðavinnu, undirbúning keppenda, hljómsveitaræfingar og allt sem til þarf til að gera …Lestu áfram
Nú eru 4 dagar þangað til söngkeppnin Tónkvíslin verður haldin hér á Laugum. Við hitum upp með því að sýna ykkur sigurvegarann frá í fyrra úr hópi nemenda Framhaldsskólans á Laugum. Hann heitir Elvar Baldvinsson.
Tónkvíslin, söngkeppnin okkar, fer fram næsta laugardag. Nemendur komnir á fullt í undirbúning og hér að neðan má sjá upphitunarmyndband sem Brynjar Steinn Stefánsson gerði á dögunum. Hægt er að fylgjast með undirbúningi keppninnar á facebook-síðu Tónkvíslar https://www.facebook.com/tonkvislin/ Smellið á linkinn hér að neðan til að sjá myndbandið Myndband