4 dagar í Tónkvíslina
Nú eru 4 dagar þangað til söngkeppnin Tónkvíslin verður haldin hér á Laugum. Við hitum upp með því að sýna ykkur sigurvegarann frá í fyrra úr hópi nemenda Framhaldsskólans á Laugum. Hann heitir Elvar Baldvinsson.
Nú eru 4 dagar þangað til söngkeppnin Tónkvíslin verður haldin hér á Laugum. Við hitum upp með því að sýna ykkur sigurvegarann frá í fyrra úr hópi nemenda Framhaldsskólans á Laugum. Hann heitir Elvar Baldvinsson.
Tónkvíslin, söngkeppnin okkar, fer fram næsta laugardag. Nemendur komnir á fullt í undirbúning og hér að neðan má sjá upphitunarmyndband sem Brynjar Steinn Stefánsson gerði á dögunum. Hægt er að fylgjast með undirbúningi keppninnar á facebook-síðu Tónkvíslar https://www.facebook.com/tonkvislin/ Smellið á linkinn hér að neðan til að sjá myndbandið Myndband
,,Þriðjudaginn 7. febrúar fór ég austur á Egilsstaði þar sem 10 nemendur eru í fjarnámi í stjörnufræðiáfanga sem ég kenni. Áttum við saman góða stund þar sem nemendur héldu fyrirlestra fyrir mig og ég fyrir þau, ásamt því að farið var í stjörnuskoðun. Eiga nemendurnir lof skilið fyrir úthaldið því við hittumst kl. 16 og vorum að til kl. 20 (eftir hefðbundinn skóladag hjá þeim). Svo var ég þeirrar gæfu aðnjótandi …Lestu áfram
Nemendafélag Framhaldsskólans á Laugum í samvinnu við mötuneyti skólans hélt veglegt þorrablót í gærkvöldi þar sem nemendur, kennarar og starfsfólk mættu prúðbúin í nýuppgerðan malsal að blóta þorra. Borðhald hófst kl. 18.00 þar sem formaður skemmtinefndar, Hákon Breki Harðarson bauð alla velkomna. Samkoman hófst með því að sungin voru lög áður en gengið var að trogum með niðursneiddum þorramat af bestu gerð. Að loknu borðhaldi voru skemmtiatriði í boði nemenda; …Lestu áfram
Gettu betur lið skólans tapaði naumlega í 16 liða úrslitum í gærkvöldi fyrir liði Fsu. Lokastaða var 17 – 15 og því var liðið ótrúlega nálægt því að vinna sér inn þátttökurétt í 8 liða úrslitum og þar með rétt til að keppa í sjónvarpshluta keppninnar. Frábær frammistaða engu að síður hjá okkar krökkum og óskum við þeim til hamingju með árangurinn í keppninni í ár. Jafnframt óskum við FSu …Lestu áfram