Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1574172560.37

    Lýðfræði
    LÝÐF2AB06
    3
    Lýðfræði
    Seinni áfangi
    Samþykkt af skóla
    2
    6
    Áfanginn er sjálfstætt framhald áfangans LÝÐF2AA12, sem fjallaði um einstaklinginn, heilbrigði og samfélag, en nú er farið lengra út í heiminn og umhverfismál, menning og listir verða aðal viðfangsefni áfangans. Upplýsingalæsi og siðvitund verða undirstef í allri nálgun viðfangsefna.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • vistfræði, búsvæðum og fæðukeðjum
    • vistkerfi manna og dýra
    • áhrifum mannsins á lífsskilyrði sín og annarra lífvera
    • hvernig menningareinkenni birtast t.d. í kvikmyndum, matarhefðum og listum
    • samspili menningar og umhverfis
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • átta sig á samspili menningar og umhverfis
    • hanna og framkvæma einfaldar vísindalegar tilraunir
    • skrifa vísindalegar skýrslur
    • vinna með öðrum
    • vinna með heimildir
    • skrifa vandaðan texta samkvæmt reglum íslensks máls
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka þátt í samfélagsumræðu með ábyrgum og upplýstum hætti
    • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
    • sýna ábyrgð, sjálfstæði og sköpun í vinnubrögðum
    • greina stöðu sína í því umhverfi sem hann lifir og hrærist í, bæði samfélaginu og náttúrulegu umhverfi
    • beita gagnrýnni og skapandi hugsun á ólík viðfangsefni
    • sýna hugkvæmni og frumkvæði við lausn verkefna
    • skilja samspil manns og náttúru í gegnum tíðina og fram til dagsins í dag