Markmið áfangans er að leggja grunn að því að nemandinn geti notað dönsku til samskipta við Dani sem og lesið sér til gagns um ýmis efni á dönsku. Nemandinn æfir hlustun, tal, lestur og ritun. Talþjálfun miðar að því að nemendur læri að orða hugsanir sínar skýrt og skilmerkilega í samtölum og frásögnum. Læsi er þjálfað með því að lesa fjölbreytta texta. Hlustað er á talað mál af ýmsum miðlum og nemandinn þjálfast í að tjá sig á dönsku, skriflega og munnlega. Áhersla verður lögð á að efla skilning á rituðu og mæltu máli og auka orðaforðann. Önnur norræn mál eru kynnt og fjallað um skyldleika þeirra. Lögð er áhersla á að efla samvinnu milli nemenda og einnig að nemandinn beri ábyrgð á eigin námsframvindu og sé meðvitaður um mismunandi aðferðir til að tileinka sér tungumál.
DANS2AA05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
danska málkerfinu til markvissrar notkunar, bæði skriflega og munnlega
notkun hjálpargagna, meðal annars orðabóka, leiðréttingaforrita auk ýmissa hjálpargagna á netinu
dönsku máli, danskri menningu og tengslum Íslands og Danmerkur
skyldleika dönskunnar við ensku, íslensku og önnur norræn tungumál
helstu einkennum danskrar tungu í framburði og rituðu máli
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
hlusta á danskt mál við mismunandi aðstæður og skilja meginmál t.d. í fréttum og leiknu efni
lesa sér til gangs og ánægju texa um margvísleg málefni sem og sérhæfðari og þyngri texta
tjá sig skýrt í ræðu og riti um málefni sem hann hefur kynnt sér
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja talað mál í samtali og í fjölmiðlum og átta sig á inntaki þess
lesa á milli línanna í rituðu máli og átta sig á dýpri merkingu þyngri og fjölbreyttari texta
skrifa margs konar texta og fylgja þeim rithefðum sem við eiga hverju sinni
auka meðvitund um eigin færni í tungumálinu og eigin leiðir til að tileinka sér málið
leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
skilja inntak ritmáls um almenn og sérhæfð efni sem hann þekkir til og hefur áhuga á
nýta nýjan orðaforða bæði munnlega og skriflega
Í áfanganum er viðhaft leiðsegjandi mat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega. Nánar er kveðið á um námsmat í kennsluáætlun.