Í áfanganum er fjallað einstaklinginn og stöðu hans í samfélaginu (nær og fjær) og einnig heilbrigði í víðum skilningi. Grunnhugtökin sem unnið er með eru mannslíkaminn, næring, hreyfing, hvíld, kynheilbrigði, geðheilbrigði, félagsfærni og fjármálalæsi. Upplýsingalæsi og siðvitund eru undirstef í allri nálgun viðfangsefna. Einnig er áhersla lögð á yndislestur og skapandi skrif.
Áhersla er lögð á að þroska hæfni nemenda til að leysa verkefni í hópi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Kostum og göllum lítils heimavistarskóla í sveit, kynnist reglum hans og menningu og verði góður skólaþegn
Nauðsyn þess að hver og einn finni þær námsaðferðir sem henta honum best en kynnist jafnframt fleiri aðferðum og fjölbreytileika við námið
Mikilvægi heilbrigðs lífernis og reglusemi í leik og starfi. Hvíld, mataræði og hreyfing
Hvað heilsa er í víðum skilningi, þ.e. hvernig hún byggist á andlegri, líkamlegri og félagslegri vellíðan
Hvernig lífsstíll hefur áhrif á heilsuna
Þeirri hugmyndafræði sem liggur að baki hópastarfs
Að veita gleði og ánægju og forðast særandi framkomu
Að sjónarhorn allra er jafn mikilvægt
Mikilvægi kynheilbrigðis
Skipulagi mannslíkamans og hvernig líffærakerfi vinna saman að samvægi
Einföldum fjármálum daglegs lífs og hlutverki peninga
Tilgangi skatta og annars frádráttar frá launum
Rekstri heimilis og bifreiðar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Setja sér heilbrigðar lífsreglur og nýta sér þá þætti sem boðið er uppá, s.s. leiðsögukennara, hjúkrunarfræðing, heimsóknir sálfræðings, íþróttaaðstöðu og mötuneyti
Skoða eigið gildismat og lífsstíl og meta hvort hann þarfnist breytinga til þess að hann falli að gildismatinu
Finna styrkleika sína sem nemandi og nýta þá sem best í sjálfstæðri vinnu og vinnu með öðrum
Afla sér upplýsinga sem tengjast efni áfangans með viðeigandi aðferðum
Nýta sér viðeigandi hugbúnað til að miðla upplýsingum
Koma fram fyrir aðra og tala máli sínu á skýran og greinargóðan hátt
Þekkja eigin líkama
Íhuga og kanna eigið viðhorf til kynlífs
Setja fram spurningar og taka þátt í umræðu um siðferðileg álitamál
Gera sér grein fyrir daglegum kostnaði
Leita sér upplýsinga og aðstoðar við nauðsynlega útreikninga (t.d. reiknilíkön)
Finna lausnir til að koma hugmyndum sínum á framfæri með skipulögðum hætti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Hagnýta sér sem best styrkleika sína í námi og leik og bæta það sem betur má fara
Taka meðvitaðar ákvarðanir varðandi eigin lífsstíl
Taka aukna ábyrgð á eigin heilsu
Horfa gagnrýnum augum á þær upplýsingar varðandi lífsstíl og heilsu sem birtast í fjölmiðlum, auglýsingum og á samfélagsmiðlum
Taka ábyrgð á eigin námi
Leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra og sýna sjálfstæði og sköpun í vinnubrögðum
Beita gagnrýninni og skapandi hugsun á ólík viðfangsefni
Meta upplýsingar og vinna með þær á þann hátt að þær skili honum þekkingu og hæfni til náms
Taka ígrundaðar ákvarðanir varðandi kynheilbrigði sitt
Taka siðferðilega afstöðu til málefna líðandi stundar
Gera áætlanir í fjármálum og setja sér markmið, t.d. um sparnað.