Almenn rúmfræði, með áherslu á skipulögð vinnubrögð. Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu og lausnum verkefna og þrauta. Þá verður sögu rúmfræðinnar eru gerð skil. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: • Evklíðsk rúmfræði: Frumhugtök, skilgreiningar, reglur og sannanir. Einshyrndir þríhyrningar, eins þríhyrningar, regla Pýþagórasar, horn við hring, hornaföll í rétthyrndum þríhyrningum. Flatarmál og rúmmál. • Hnitarúmfræði. Hnitakerfi, fjarlægð milli punkta, miðpunktur línu og jafna beinnar línu. Skurðpunktar grafa. • Táknmál og röksemdafærsla stærðfræðinnar. Nemendur vinna með hlutföll í rúmfræði og kynnast hornaföllunum í rétthyrndum þríhyrningum. Sérstaklega er fjallað um frumforsendur; skilgreiningar og reglur um horn og þríhyrninga og þannig búið til afleiðslukerfi.
Grunnskólaeinkunn B í stærðfræði eða STÆR2AM05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Frumforsendur, skilgreiningum og reglum evklíðskar rúmfræð
Þríhyrningum, marghyrningum og hornaföllum af hvössum hornum
Hornum í hring, snertil við hring, innhring og umhring
Flatarmáli og rúmmáli ýmissa forma
Hlutföllum lengda, flatarmála og rúmmála í evklíðskri rúmfræði
Hornaföllum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Leysa rúmfræðileg verkefni og þrautir á skipulagðan hát
Teikna rúmfræðileg verkefni eftir skriflegum leiðbeiningum
Reikna stærðir horna og hliða í marghyrningum með reglum rúmfræðinnar
Fylgja eftir sönnunum á stærðfræðireglum
Beita hornaföllum til útreikninga á hliðum og hornum þríhyrninga
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Setja upp margvísleg verkefni með táknmáli stærðfræðinnar og leysa þau
Skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu ásamt því að vinna með þau
Beita gagnrýnni hugsun og skipulögðum aðferðum við að leysa verkefni og þrautir
Koma orðadæmum á stærðfræðilegt form og túlka lausnina
Átta sig á ólíkum aðferðum við framsetningu hugmynda og viðfangsefni áfangans
Skrá vinnu sína á skipulegan hátt og geta rökstutt lausnir sínar
Skilja röksemdir í texta og á munnlegan hátt
Leysa verkefni áfangans á frumlegan hátt
Fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og texta, þ.m.t. sannanir úr námsefninu
Námsmat fer fram með sífelldum hætti þ.a. öll verkefni gilda til einkunnar