Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1573492686.36

    Algebra og mengi
    STÆR2AM05
    109
    stærðfræði
    Algebra, föll og mengi
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum eru helstu viðfangsefni eftirfarandi: Mengi, rauntalnakerfi, rétthyrnt hnitakerfi, bein lína, fleygbogar, lausnir ójafna og annars stigs jafna. Lögð er áhersla á skipulögð vinnubrögð, góða framsetningu og röksemdarfærslu við úrvinnslu verkefna.
    Grunnskólaeinkunn B í stærðfræði eða STÆR2RF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Helstu hugtökum er tengjast mengjum, t.a.m. mengi, stak, hlut-, sam,- og sniðmengi ásamt mengjum náttúrulegra/heillra/ræðra og rauntalna
    • Rótar- og veldareikningi með heilum og ræðum veldisvísum
    • Fyrsta og annars stigs ójöfnum
    • Rétthyrndu hnitakerfi
    • Jöfnu beinnar línu í hnitakerfi
    • Jöfnu fleygboga í hnitakerfi
    • Margliðum, reikniaðgerðir og formerki
    • Fallafræði
    • Logrum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Vinna með táknmál stærðfræðinnar á skipulagðan hátt
    • Vinna með talnamengi og talnalínur
    • Vinna með velda- og rótarreglur
    • Leysa fyrsta- og annarsstigs jöfnur og ójöfnur
    • Vinna með hnitakerfi í sléttum fleti
    • Vinna með jöfnu beinnar línu í hnitakerfi – finna skurðpunkta við ása og hallatölu.
    • Vinna með fleygboga
    • Vinna með föll og ferla í hnitakerfum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Setja upp margvísleg verkefni með táknmáli stærðfræðinnar og leysa þau
    • Skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu ásamt því að vinna með þau
    • Átta sig á ólíkum aðferðum við framsetningu hugmynda og viðfangsefni áfangans
    • Skrá vinnu sína á skipulegan hátt og geta rökstutt lausnir sínar
    • Leysa verkefni áfangans á frumlegan hátt
    Námsmat fer fram með sífelldum hætti þ.a. öll verkefni gilda til einkunnar