Meginefni áfangans eru líkindareikningur og ályktunartölfræði. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: Líkindareikningur: Talningarfræði og helstu líkindadreifingar og útreikningar tengdir þeim. Tölfræði : Fylgnihugtakið, ályktunartölfræði, grunnatriði úrtaksfræði. Megin markgildissetning tölfræðinnar. Tilgátur og prófanir. Framsetning gagna með sérhæfðum tölfræðiforritum eins GeoGebra, GapMinder og töflureiknum. Tölfræðina er hægt að tengja við áhugasviðsverkefni nemenda.
STÆR2AM05 og STÆR2RF05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Talningafræði
Algengustu líkindadreifingum
Fylgnihugtakinu
Ályktunartölfræði
Öryggisbili
Framsetningu tilgáta og prófana á þeim
Öflun tölfræðilegra upplýsinga
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nýta einfalda líkindadreifingu við útreikning líkinda
Reikna fylgni á milli tveggja breytna
Túlka fylgnistuðla
Nota hugtökin öryggisbil, öryggismörk og öryggisstig
Setja fram tilgátur og prófa þær
Framkvæma Z-próf og t-próf
Nýta tölfræðileg forrit við vinnslu og framsetningu tölfræðilegra gagna
Nota framangreinda tölfræði við að svara hagnýtum spurningum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Setja upp margvísleg verkefni með táknmáli stærðfræðinnar og leysa þau
Skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu ásamt því að vinna með þau
Beita gagnrýnni hugsun og skipulögðum aðferðum við að leysa verkefni og þrautir
Koma orðadæmum á stærðfræðilegt form og túlka lausnina
Átta sig á ólíkum aðferðum við framsetningu hugmynda og viðfangsefni áfangans
Skrá vinnu sína á skipulegan hátt og geta rökstutt lausnir sínar
Skilja röksemdir í texta og á munnlegan hátt
Leysa verkefni áfangans á frumlegan hátt
Fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og texta, þ.m.t. sannanir úr námsefninu
Námsmat fer fram með fjölbreyttum og sífelldum hætti þ.a. öll verkefni gilda til einkunnar