Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1566751783.52

    Heildun, deildajöfnur, runur og raðir
    STÆR3HE05
    96
    stærðfræði
    1.stigs deildarjöfnur., heildun, runur og raðir
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Meginefni áfangans eru heildun, heildunaraðferðir, flatarmáls- og rúmmálsreikningar með heildi, deildajöfnur af fyrsta stigi, runur og raðir. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: Heildun: Stofnföll, ákveðið og óákveðið heildi. Reiknireglur fyrir heildi. Flatarmál svæða sem afmarkast af gröfum falla reiknað með heildun. Hagnýting heilda, t.d. við lausn verkefna sem tengjast fjölda, magni, vegalendum og hraða. Heildunaraðferðir, s.s. innsetning, hlutheildun og liðun í stofnbrot. Rúmmál snúðs þegar snúið er um x –ás eða y – ás. Tengsl deildunar og heildunar. Deildajöfnur: Fyrsta stigs deildajöfnur af ýmsum gerðum. Notkun deildajafna við lausn hagnýtra dæma af ólíkum toga. Runur og raðir: Endanlegar og óendanlegar runur og raðir. Jafnmuna- og jafnhlutfallarunur og raðir. Samleitnar, óendanlegar jafnhlutfallaraðir. Hagnýting runa og raða í verkefnum tengdum náttúruvísindum. Sannanir með stærðfræðilegri þrepun.
    STÆR3DF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Heildunaraðferðum til útreikninga á flatarmáli og rúmmáli
    • Hagnýtingu heilda
    • Tengsl heildunar og deildunar
    • Deildajöfnum af fyrsta stigi
    • Hagnýtingu deildajafna
    • Runum og röðum
    • Hagnýtingu runa og raða
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Finna stofnföll einfaldra falla s.s. veldisfalla, vísisfalla, lografalla og hornafalla
    • Reikna ákveðið og óákveðið heildi og reikna flatarmál svæða sem afmarkast af einföldum ferlum
    • Beita heildunaraðferðum til að heilda flóknari föll
    • Reikna ákveðin heildi og finna flatarmál og rúmmál með heildun
    • Greina á milli ólíkra gerða fyrsta stigs deildajafna og leysa þær með viðeigandi aðferðum
    • Leysa verkefni tengd náttúruvísindum með runum og röðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Setja upp margvísleg verkefni með táknmáli stærðfræðinnar og leysa þau
    • Skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu ásamt því að vinna með þau
    • Beita gagnrýnni hugsun og skipulögðum aðferðum við að leysa verkefni og þrautir
    • Koma orðadæmum á stærðfræðilegt form og túlka lausnina
    • Átta sig á ólíkum aðferðum við framsetningu hugmynda og viðfangsefni áfangans
    • Skrá vinnu sína á skipulegan hátt og geta rökstutt lausnir sínar
    • Skilja röksemdir í texta og á munnlegan hátt
    • Leysa verkefni áfangans á frumlegan hátt
    • Fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og texta, þ.m.t. sannanir úr námsefninu
    Námsmat fer fram með fjölbreyttum og sífelldum hætti þ.a. öll verkefni gilda til einkunnar